04.06.2025

Res­ults of the Frjálsi An­nual Gen­eral Meet­ing

Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins var haldinn í höfuðstöðvum Arion banka þriðjudaginn 3. júní. Sjóðfélagar gátu einnig fylgst með fundinum í gegnum beint streymi og tekið þátt í rafrænum atkvæðagreiðslum um tillögur fundarins líkt og sjóðfélagar á fundarstað.

Á fundinum var skýrsla stjórnar kynnt ásamt ársreikningi sjóðsins, niðurstöðum tryggingafræðilegrar athugunar og fjárfestingarstefnu. Jafnframt voru tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins lagðar fram og samþykktar ásamt því að tillögur um stjórnarlaun og endurskoðanda voru samþykktar.

Kosning í aðalstjórn og varastjórn fór eingöngu fram með rafrænum hætti. Hún stóð yfir í viku og lauk kl. 17:00 á ársfundardegi.

Kosning stjórnarmanna

Átta framboð bárust í þrjú laus sæti í aðalstjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins.

Frambjóðendur sem hlutu kosningu í aðalstjórn til næstu þriggja ára:

  • Elín Þórðardóttir

  • Elías Jónatansson

  • Haraldur Pálsson

Fimm framboð bárust í eitt laust sæti í varastjórn. Egill Örn Sigþórsson var kjörinn til næstu þriggja ára.

Share article:

facebookxmaillinkedin

More news

News overview
16 October 2026

Changes to interest rates on indexed loans

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Read more
15 October 2026

It is now possible to allocate private pension savings towards a housing loan

Applications have reopened for the tax-free allocation of supplementary pension savings under the general scheme. New legislation on the allocation of private pension savings toward housing loans took effect on 1 October 2026.

Read more
14 October 2026

Unpaid pension fund contributions for the year 2025

Frjálsi has now sent out payment requests and created claims in online banking for unpaid pension fund contributions for the year 2025. Pension fund contributions must be paid on all wage income/calculated remuneration, not just on base salary or primary employment.

Read more