31.03.2015
Rekstur Frjálsa lífeyrissjóðsins árið 2014
Nafnávöxtun fjárfestingarleiða séreignardeildar sjóðsins var á bilinu 1,7%-6,8% árið 2014 og 5 ára meðalnafnávöxtun 6,9%-10,0%. Nánari upplýsingar um ávöxtun sjóðsins er að finna hér.
Nafnávöxtun tryggingadeildar var 5,6% árið 2014 og 5 ára meðalnafnávöxtun 8,4%. Skuldabréf tryggingadeildar eru gerð upp á kaupkröfu en skuldabréf séreignardeildar eru gerð upp á markaðsvirði.
Tryggingafræðilega staða samtryggingarsjóðs batnaði um 1,5 prósentustig á árinu. Í lok árs 2014 var hlutfall eigna 2,1% umfram áfallnar skuldbindingar og 1,7% umfram heildarskuldbindingar.
Hrein eign til greiðslu lífeyris nam um 146 milljörðum í árslok samanborið við 132 milljarða árið 2013 og stækkaði sjóðurinn um 11% á milli ára. Stærð séreignadeildar var um 106 milljarðar og stærð tryggingadeildar um 40 milljarðar.
Iðgjöld sjóðfélaga og launagreiðenda námu 9,9 milljörðum samanborið við 8,9 milljarða árið áður og jukust um 12%. Lágmarksiðgjöld voru 8,2 milljarðar og viðbótariðgjöld 1,7 milljarðar.
Lífeyrisgreiðslur úr séreignadeild og tryggingadeild voru 2,1 milljarðar en 1,8 milljarðar árið áður og hækkuðu um 18%. Fyrirframútgreiðslur á séreignarsparnaði námu 1 milljarði en 630 milljónum árið áður og hækkuðu um 60%.
Heildarfjöldi sjóðfélaga í árslok var um 49.536 og fjölgaði þeim um 1.553 á árinu eða 3%. Fjöldi sjóðfélaga sem valdi að greiða í sjóðinn var 18.991 og fjölgaði þeim um 1.206 á árinu eða 7%.