29.12.2022

Ný­jar rét­tind­atö­flur og breytt skipt­ing sky­l­duiðg­jalds taka gildi 1. janúar 2023

Fjármálaráðuneytið hefur staðfest breytingar á samþykktum sjóðsins sem taka gildi 1. janúar 2023 og fela í sér breytingar á réttindatöflum og skiptingu skylduiðgjalds í samtryggingu og séreign. Tildrög breytinganna eru að í desember 2021 staðfesti fjármála- og efnahagsráðuneytið tillögur Félags íslenskra tryggingastærðfræðinga (FÍT) um breytingar á forsendum reiknigrunns um lífslíkur, byggt á áætlun um lífslíkur í framtíðinni. Spáin gerir ráð fyrir að lífslíkur hvers fæðingarárgangs séu mismunandi, þ.e. að lífslíkur fari vaxandi með hækkandi fæðingarári en hingað til hefur mat á lífslíkum byggst á sögulegum gögnum.

Skipting skylduiðgjalds í samtryggingu og séreign

Skipting 15,5% skylduiðgjalds verður eftirfarandi í skyldusparnaðarleiðum sjóðsins:

Frjálsa leiðin

  • Samtryggingarsjóður: 8,75% (var 7,95%)

  • Frjáls séreign: 6,75% (var 7,55%)

Erfanlega leiðin

  • Samtryggingarsjóður: 3,70% (var 3,40%)

  • Bundin séreign: 6,55% (var 6,55%)

  • Frjáls séreign: 5,25% (5,55%)

Rétt er að hafa í huga að sjóðfélagar í Erfanlegu leiðinni fá ellilífeyri úr bundinni séreign til a.m.k. 82 ára aldurs en þá taka við ellilífeyrisgreiðslur úr samtryggingu til æviloka. Breytingarnar á réttindatöflum hafa engin áhrif á iðgjald eða útgreiðslur úr bundinni séreign heldur eingöngu á réttindaöflun í samtryggingu í framtíðinni.

Lífeyrisreiknivél til að sjá væntan lífeyri og söfnun séreignar

Unnið er að breytingum á lífeyrisreiknivél á vef Frjálsa  en í hana geta sjóðfélagar sett sínar forsendur til að sjá upplýsingar um væntan lífeyri og söfnun séreignar fyrir greidd iðgjöld í framtíðinni.

Áhrif á tryggingafræðilega stöðu og réttindaávinnslu

Nýi reiknigrunnurinn felur í sér veigamikla hækkun á mati skuldbindinga samtryggingarsjóða því þeir munu greiða ævilangan ellilífeyri í fleiri ár en áður hefur verið gert ráð fyrir. Á það einnig við um tryggingadeild Frjálsa lífeyrissjóðsins.

Í árslok 2021 var tryggingafræðileg staða Frjálsa eftirfarandi:

  • Eignir umfram áunnar skuldbindingar (áunnin staða): 0,1%.

  • Núvirt framtíðariðgjöld umfram núvirtar framtíðarskuldbindingar (framtíðarstaða): -17,0%.

  • Heildareignir umfram heildarskuldbindingar (heildarstaða): -9,2%.

Markmið breytinganna á réttindatöflum er að leiðrétta halla á framtíðarstöðu sjóðsins í tryggingafræðilegri athugun svo tryggingadeildin geti staðið við skuldbindingar sínar til framtíðar. Miðað við forsendur í tryggingafræðilegri athugun 2021 er framtíðarstaðan með breyttum réttindatöflum jákvæð um 1,1%. Breytingarnar þýða að sjóðfélagar ávinna sér lægri réttindi fyrir hverja krónu iðgjalds sem verður greidd frá 1. janúar 2023 og iðgjald sem er ráðstafað í samtryggingu hækkar en iðgjald í frjálsa séreign lækkar á móti. Mestar breytingar á réttindaávinnslu eru hjá yngri kynslóðum en minnstar hjá þeim eldri og nemur breytingin 10% til 20% m.v. iðgjaldagreiðslur til 70 ára aldurs. Þrátt fyrir að réttindaávinnsla lækki þá er gert ráð fyrir að samanlagðar lífeyrisgreiðslur til sjóðfélaga vegna framtíðarréttinda verði að meðaltali sambærilegar og áður var gert ráð fyrir því þær muni standa yfir í lengri tíma en áður hafði verið spáð.

Þar sem nýjar lífslíkutöflur gera ráð fyrir að meðalævi yngri árganga verið hærri en eldri árganga hefur verið gerð réttindatafla fyrir hvern fæðingarárgang sem miðar að því að greidd iðgjöld standi undir skuldbindingum hvers árgangs og eru töflurnar að finna í viðauka í samþykktum sjóðsins.

Share article:

facebookxmaillinkedin

More news

News overview
16 October 2026

Changes to interest rates on indexed loans

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Read more
15 October 2026

It is now possible to allocate private pension savings towards a housing loan

Applications have reopened for the tax-free allocation of supplementary pension savings under the general scheme. New legislation on the allocation of private pension savings toward housing loans took effect on 1 October 2026.

Read more
14 October 2026

Unpaid pension fund contributions for the year 2025

Frjálsi has now sent out payment requests and created claims in online banking for unpaid pension fund contributions for the year 2025. Pension fund contributions must be paid on all wage income/calculated remuneration, not just on base salary or primary employment.

Read more