31.05.2018

Niðurstöður árs­fundar Frjálsa lífeyr­is­s­jóðsins

Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins var haldinn 30. maí sl. og var vel sóttur. Á fundinum var kynnt skýrsla stjórnar, ársreikningur sjóðsins, niðurstöður tryggingafræðilegrar athugunar og fjárfestingarstefna. Jafnframt voru breytingartillögurá samþykktum sjóðsins lagðar fram.

Kosning stjórnarmanna

Á fundinum var kosið um tvo stjórnarmenn til tveggja ára í aðalstjórn og tvo stjórnarmenn í varastjórn til eins árs. Réttkjörin voru þau Anna Sigríður Halldórsdóttir og Halldór Friðrik Þorsteinsson í aðalstjórn og Hrafn Árnason og Sigurður H. Ingimarsson í varastjórn.

Tillögur

Tillögur stjórnar um breytingar á samþykktumvoru samþykktar að undanskyldu ákvæði 4.5 og 4.6. um aðkomu valnefndar að kosningu stjórnarmanna á ársfundi. Tillaga sjóðfélaga um að fella út ákvæði greinar 4.9 í samþykktum sjóðsins þess efnis að Arion banki annist daglegan rekstur sjóðsins hlaut ekki samþykki.

Tillaga stjórnar um óbreytt stjórnarlaun, 163.500 kr. á mánuði og tvöföld til stjórnarformanns, var samþykkt.

Tillaga stjórnarum að ársfundur feli stjórn sjóðsins að koma með tillögu til breytinga á samþykktum á næsta ársfundi eða aukaársfundi varðandi tilhögun að rekstrarfyrirkomulagi sjóðsins var samþykkt.

Deloitte var endurkjörinn endurskoðandi sjóðsins.

Ásgeiri Thoroddsen þakkað

Á ársfundinum voru Ásgeiri Thoroddsen þökkuð giftudrjúg störf í þágu Frjálsa lífeyrissjóðsins. Ásdís Eva Hannesdóttir, varaformaður stjórnar, þakkaði Ásgeiri fyrir forystu hans í málefnum sjóðsins í 16 ár og Arnaldur Loftsson, framkvæmdastjóri sjóðsins, færði honum blómvönd. Sjóðfélagar á fundinum hylltu fráfarandi stjórnarformann með lófaklappi, en hann tilkynnti fyrir tveimur árum að hann hygðist ekki bjóða sig fram til stjórnarsetu að loknu kjörtímabilinu.

Share article:

facebookxmaillinkedin

More news

News overview
16 October 2026

Changes to interest rates on indexed loans

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Read more
15 October 2026

It is now possible to allocate private pension savings towards a housing loan

Applications have reopened for the tax-free allocation of supplementary pension savings under the general scheme. New legislation on the allocation of private pension savings toward housing loans took effect on 1 October 2026.

Read more
14 October 2026

Unpaid pension fund contributions for the year 2025

Frjálsi has now sent out payment requests and created claims in online banking for unpaid pension fund contributions for the year 2025. Pension fund contributions must be paid on all wage income/calculated remuneration, not just on base salary or primary employment.

Read more