23.07.2018

Í tile­fni skýrslu Ver­dicta um ávöx­tun Frjálsa lífeyr­is­s­jóðsins

Í skýrslu Verdicta, um 20 ára raunávöxtun samtryggingardeilda lífeyrissjóða, sem boðin hefur verið til sölu að undanförnu, eru birtar tölur um ávöxtun samtryggingardeildar Frjálsa lífeyrissjóðsins. Þessar ávöxtunartölur koma ekki heim og saman við útreikninga sem gerðir eru í samræmi við reglur Fjármálaeftirlitsins um hvernig reikna skuli raunávöxtun lífeyrissjóða. Óskað hefur verið eftir upplýsingum um forsendur útreikninga sem skýrsluhöfundar nota.

Frjálsi hefur rekið samtryggingardeild frá 1.júlí 1999 eða í tæp 18 ár af þeim 20 sem til skoðunar eru í skýrslu Verdicta. Saga Frjálsa nær aftur til ársins 1978 þegar séreignardeild sjóðsins var stofnuð en þeir sem greiða í samtryggingardeild Frjálsa greiða jafnframt hluta skylduiðgjalds síns í séreignardeild sjóðsins. Samkvæmt reglum Fjármálaeftirlitsins um hvernig reikna skuli raunávöxtun lífeyrissjóða er raunávöxtun samtryggingardeildar Frjálsa 3,15%. Sá útreikningur er fenginn að teknu tilliti til breytinga á mati eigna sjóðsins sem gerð er ítarlega grein fyrir í ársreikningi 2016 og með ávöxtunartölum séreignardeildar Frjálsa fyrstu þrjú ár tímabilsins. Ef öll skuldabréf Frjálsa eru reiknuð á markaðsvirði, eins og heimilt er að gera en Frjálsi gerir ekki, er raunávöxtunin 3,36%. Þessar tölur hafa verið staðfestar af endurskoðanda Frjálsa. Í skýrslu Verdicta kemur fram að raunaávöxtunin sé 2,41%. Á þessu er verulegur óútskýrður munur sem skiptir máli í mati sem nær yfir 20 ára skeið.

Umrædd skýrsla nær einvörðungu til samtryggingardeilda lífeyrissjóða og ekki er tekið tillit til uppbyggingar sjóða líkt og Frjálsa þar sem sjóðfélagar greiða skylduiðgjald sitt bæði í séreignar- og samtryggingardeild. Í mati á árangri lífeyrissjóða við að ávaxta fé sjóðfélaga er rétt að líta til ávöxtunar heildariðgjaldsins sem fer bæði í samtryggingar- og séreignardeild. Það sem skiptir máli fyrir sjóðfélaga er hvaða lífeyri þeir fá á endanum fyrir þau iðgjöld sem greidd eru til lífeyrissjóðsins. Samanburð á slíku vantar algerlega í úttektina, þ.e. að taka tillit til heildargreiðslu skylduiðgjalds sem er ráðstafað í séreignardeild og í samtryggingardeild.

Frjálsi starfar í fimm deildum og er sá lífeyrissjóður á Íslandi sem býður sjóðfélögum að ráðstafa einu hæsta hlutfalli af skylduiðgjaldi sínu í séreignarsjóð, eða frá 72-78% af 12-15,5% iðgjaldi. Eignir sjóðfélaga í séreignardeildum Frjálsa eru um 70% af heildareignum sjóðsins og eignir sjóðfélaga í tryggingadeild 30%. Þetta þýðir að hver sjóðfélagi á að meðaltali lífeyrissparnað sinn í Frjálsa í séreign og samtryggingu í sömu hlutföllum. Sjóðfélagar Frjálsa geta í raun valið um fjölbreyttar leiðir til að stýra áhættunni sem þeir taka með ávöxtun síns skylduiðgjalds. Ef Frjálsi 1, sem er stærsta og fjölmennasta séreignarleiðin, er tekin sem dæmi er raunávöxtun sjóðfélaga síðustu 20 ár 3,62%, til 25 ára 4,38% og til 30 ára 4,81%.

Sjá greinargerð vegna skýrslu Verdicta.

Share article:

facebookxmaillinkedin

More news

News overview
16 October 2026

Changes to interest rates on indexed loans

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Read more
15 October 2026

It is now possible to allocate private pension savings towards a housing loan

Applications have reopened for the tax-free allocation of supplementary pension savings under the general scheme. New legislation on the allocation of private pension savings toward housing loans took effect on 1 October 2026.

Read more
14 October 2026

Unpaid pension fund contributions for the year 2025

Frjálsi has now sent out payment requests and created claims in online banking for unpaid pension fund contributions for the year 2025. Pension fund contributions must be paid on all wage income/calculated remuneration, not just on base salary or primary employment.

Read more