21.10.2025

Frjálsi Pen­sion Fund and the Pen­sion Fund of the Icelandic Dental As­so­ci­ation merge

Stjórnir Frjálsa lífeyrissjóðsins og Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands (LTFÍ) hafa undirritað samning um að sameina lífeyrissjóðina. Lífeyrissjóður Tannlæknafélags Íslands sameinast Frjálsa lífeyrissjóðnum, sem stækkar í kjölfarið og tekur yfir öll réttindi og skyldur gagnvart sjóðfélögum LTFÍ. Miðað við 30. september sl. var stærð Frjálsa um 562 milljarðar og stærð LTFÍ um 11 milljarðar.

Viðræður um sameiningu sjóðanna hófust í lok júní 2025 og í kjölfarið fór fram greinargott mat á fýsileika sameiningar. Telja stjórnir beggja lífeyrissjóða að sameining muni efla rekstrargrundvöll þeirra og sé því til hagsbóta fyrir sjóðfélaga en lífeyrissjóðirnir eru afar svipaðir að uppbyggingu; skylduiðgjöldum sjóðfélaga er til að mynda skipt í séreign og samtryggingu sem hefur veitt sjóðunum ákveðna sérstöðu umfram flesta aðra lífeyrissjóði. Samkvæmt samningnum tekur Frjálsi við eignum og skuldbindingum LTFÍ m.v. 31. desember 2025 og frá þeim tíma tekur Frjálsi við iðgjöldum og greiðir lífeyri til sjóðfélaga. Sameiningin er háð samþykki á sjóðfélagafundi LTFÍ sem verður haldinn í nóvember og staðfestingu fjármálaráðuneytisins á breytingum á samþykktum sjóðsins.

Ásdís Eva Hannesdóttir, stjórnarformaður Frjálsa lífeyrissjóðsins:

„Ég vil þakka stjórn Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands fyrir það traust sem hún sýnir Frjálsa lífeyrissjóðnum með því að óska eftir sameiningu sjóðanna. Með sameiningunni verða sjóðfélagar LTFÍ hluti af öflugum lífeyrissjóði með tæplega 80 þúsund sjóðfélögum. Við munum leggja okkur fram í samstarfi við rekstraraðila sjóðsins, Arion banka, að veita tannlæknum líkt og öðrum sjóðfélögum framúrskarandi þjónustu og skila góðri ávöxtun. Við sameinum styrkleika beggja sjóða og leggjum grunn að traustri og öflugri framtíð með hagsmuni allra sjóðfélaga að leiðarljósi.“

Sigurgísli Ingimarsson, stjórnarformaður Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands:

„Eftir að stjórn Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands hafði frá byrjun janúar 2025 kynnt sér ítarlega ýmsa möguleika til áframhaldandi reksturs sjóðsins í óbreyttri mynd eða samruna við annan sambærilegan lífeyrissjóð varð niðurstaðan að leita eftir samrunaviðræðum við Frjálsa lífeyrissjóðinn og hófust viðræður þar að lútandi í lok júní 2025. Ég er sannfærður um að við höfum valið þann kost sem bestur var í stöðunni með hagsmuni sjóðfélaga að leiðarljósi. Við sameinumst stórum lífeyrissjóði með sögu um góðan og vel heppnaðan rekstur. Hjá Frjálsa er áhersla lögð á öfluga eigna- og áhættustýringu, valfrelsi og metnaðarfulla stafræna þjónustu sem munu koma sjóðfélögum LTFÍ til góða í framtíðinni.“

Share article:

facebookxmaillinkedin

More news

News overview
16 October 2026

Changes to interest rates on indexed loans

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Read more
15 October 2026

It is now possible to allocate private pension savings towards a housing loan

Applications have reopened for the tax-free allocation of supplementary pension savings under the general scheme. New legislation on the allocation of private pension savings toward housing loans took effect on 1 October 2026.

Read more
14 October 2026

Unpaid pension fund contributions for the year 2025

Frjálsi has now sent out payment requests and created claims in online banking for unpaid pension fund contributions for the year 2025. Pension fund contributions must be paid on all wage income/calculated remuneration, not just on base salary or primary employment.

Read more