13.05.2014

Frjálsi lífeyr­is­s­jóðurinn valinn lífeyr­is­s­jóður ársins á Íslandi

Frjálsi lífeyrissjóðurinn hefur verið valinn lífeyrissjóður ársins á Íslandi af fagtímaritinu Acquisition International. Þetta kemur fram í sérstakri útgáfu tímaritsins um verðlaunin sem eru veitt á hverju ári þeim sem þykja hafa skarað fram úr á sínu sviði sl. 12 mánuði.

Það sem dómnefndin leit til við val sitt á sjóðnum var m.a. uppbygging sjóðsins þar sem sjóðfélagar geta ráðstafað skylduiðgjöldum sínum í samtryggingarsjóð og séreignarsjóð, fjölbreyttir valkostir í útgreiðslum fyrir sjóðfélaga og mikil fjölgun sjóðfélaga þrátt fyrir frjálsa aðildarskyldu að sjóðnum. Jafnframt að sjóðnum hefði tekist að verja hagsmuni sjóðfélaga við erfiðar aðstæður á fjármálamörkuðum.

Acquisition International er alþjóðlegt tímarit um fjármál sem er gefið út mánaðarlega í 53 þúsund eintökum. Með því að smella hér má sjá verðlaunaútgáfu tímaritsins.

Á meðfylgjandi mynd má sjá verðlaunagripinn sem sjóðurinn fékk fyrir að vera valinn lífeyrissjóður ársins á Íslandi af fagtímaritinu Acquisition International.

Share article:

facebookxmaillinkedin

More news

News overview
16 October 2026

Changes to interest rates on indexed loans

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Read more
15 October 2026

It is now possible to allocate private pension savings towards a housing loan

Applications have reopened for the tax-free allocation of supplementary pension savings under the general scheme. New legislation on the allocation of private pension savings toward housing loans took effect on 1 October 2026.

Read more
14 October 2026

Unpaid pension fund contributions for the year 2025

Frjálsi has now sent out payment requests and created claims in online banking for unpaid pension fund contributions for the year 2025. Pension fund contributions must be paid on all wage income/calculated remuneration, not just on base salary or primary employment.

Read more