25.11.2014

Frjálsi lífeyr­is­s­jóðurinn valinn besti lífeyr­is­s­jóður Evrópu í sínum stærðar­flokki

Frjálsi lífeyrissjóðurinn hlaut tvenn verðlaun í verðlaunasamkeppni lífeyrissjóða sem haldin var af fagtímaritinu Investment Pension Europe (IPE) nýverið. Sjóðurinn var valinn besti lífeyrissjóður i Evrópu í sínum stærðarflokki en miðað er við sjóði sem eru minni en einn milljarður evra að stærð (153 milljarðar króna). Jafnframt var sjóðurinn valinn besti lífeyrissjóður Evrópulanda med færri en eina milljón íbúa annað árið í röð og tilnefndur til verðlauna í tveimur öðrum flokkum. Er þetta besti árangur sem sjóðurinn hefur náð í IPE verðlaunasamkeppninni.

Í umsögn dómnefndar kemur m.a. fram að:

  • Sjóðfélagar njóti einstakrar uppbyggingar sjóðsins sem bjóði þeim að skipta skylduiðgjöldum í séreign og samtryggingu.

  • Sjóðurinn hafi öfluga eignastýringu.

  • Sjóðurinn hafi stækkað hlutfallslega þrisvar sinnum meira en íslenska lífeyriskerfið á undanförnum árum.

  • Mikil ánægja sé meðal sjóðfélaga með sjóðinn skv. könnunum.

Frjálsi lífeyrissjóðurinn, sem er í rekstri hjá Arion banka, er um 140 milljarðar að stærð og sjóðfélagar eru um 50 þúsund talsins. Sjóðurinn hentar þeim sem hafa frjálst val um í hvaða lífeyrissjóð þeir greiða 12% skylduiðgjald og hentar jafnframt þeim sem leggja fyrir í viðbótarlífeyrissparnað.

IPE er eitt virtasta fagtímarit Evrópu um lífeyrismál. Árlega veitir tímaritið þeim lífeyrissjóðum verðlaun sem að mati dómnefndar IPE hafa skarað fram úr í sínu heimalandi og í Evrópu. Danski lífeyrissjóðurinn Pension Danmark var valinn besti lífeyrissjóður í Evrópu að þessu sinni.

Arnaldur Loftsson framkvæmdastjóri Frjálsa lífeyrissjóðsins:

„Ég er mjög ánægður með að Frjálsi lífeyrissjóðurinn hafi fengið tvenn verðlaun og tvær aðrar tilnefningar í IPE verðlaunasamkeppninni sem er besti árangur sjóðsins frá upphafi. Verðlaunin eru ánægjulegur vitnisburður um kosti þess að sjóðfélagar hafi fjölbreytt og áhættumiðað val um uppbyggingu á séreignarsparnaði og samtryggingarsparnaði sem hentar hverjum og einum. Þau gefa jafnframt til kynna að sjóðurinn sýni fagleg vinnubrögð við mótun fjárfestingarstefnu og við ákvarðanartöku í eignastýringu sjóðsins. Verðlaunin eru starfsfólki og stjórn sjóðsins hvatning til áframhaldandi góðra verka með það að markmiði að ná góðri ávöxtun og veita sjóðfélögum framúrskarandi þjónustu.“

Arnaldur Loftsson, framkvæmdastjóri Frjálsa lífeyrissjóðsins, tekur við verðlaununum sem besti lífeyrissjóðurinn í sínum stærðarflokki.

Share article:

facebookxmaillinkedin

More news

News overview
16 October 2026

Changes to interest rates on indexed loans

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Read more
15 October 2026

It is now possible to allocate private pension savings towards a housing loan

Applications have reopened for the tax-free allocation of supplementary pension savings under the general scheme. New legislation on the allocation of private pension savings toward housing loans took effect on 1 October 2026.

Read more
14 October 2026

Unpaid pension fund contributions for the year 2025

Frjálsi has now sent out payment requests and created claims in online banking for unpaid pension fund contributions for the year 2025. Pension fund contributions must be paid on all wage income/calculated remuneration, not just on base salary or primary employment.

Read more