20.05.2016
Framboð til stjórnar á ársfundi
Frestur til að skila inn framboði í stjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins fyrir ársfund rann út 19. maí sl. Á ársfundinum 26. maí nk. verður kosið um tvo aðalmenn til tveggja ára og tvo varamenn til eins árs.
Eftirtaldir hafa skilað inn framboðum í aðalstjórn:
Anna Sigríður Halldórsdóttir, hagfræðingur. Sérfræðingur hjá Hagstofu Íslands og stjórnarmaður í Frjálsa lífeyrissjóðnum.
Ásgeir Thoroddsen lögfræðingur. Lögmaður og stjórnarformaður í Frjálsa lífeyrissjóðnum.
Ingvi Þór Georgsson, viðskiptafræðingur og MSc í Alþjóðaviðskiptum. Starfsmaður í upplýsinga- og kynningarmálum hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi.
Tveir skiluðu inn framboðum í varastjórn og eru þeir því sjálfkjörnir:
Selma Svavarsdóttir, MBA. Verkefnastjóri á starfsmannasviði Landsvirkjunar.
Tryggvi Þór Herbertsson, dr. í hagfræði. Fjármála- og rekstrarráðgjafi.