18.04.2013
Framboð til stjórnar á ársfundi
Frestur til að skila inn framboði í stjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins fyrir ársfund rann út 17. apríl sl. Á ársfundinum 24. apríl. nk. verður kosið um tvo aðalmenn til tveggja ára og tvo varamenn til eins árs.
Eftirtaldir hafa skilað inn framboðum í aðalstjórn:
Ásdís Eva Hannesdóttir, MBA. Framkvæmdastjóri Norræna félagsins á Íslandi og núverandi stjórnarmaður í Frjálsa lífeyrissjóðnum.
Guðmundur Óskarsson, rekstrarverkfræðingur (M.Sc). Framkvæmdastjóri upplýsingatækni (CIO) hjá Össuri hf.
Magnús Pálmi Skúlason, lögfræðingur. Lögmaður hjá Lögskiptum ehf. og núverandi stjórnarmaður í Frjálsa lífeyrissjóðnum.
Eftirtaldir hafa skilað inn framboðum í varastjórn:
Anna Sigríður Halldórsdóttir, hagfræðingur. Sérfræðingur hjá Hagstofu Íslands og núverandi varastjórnarmaður í Frjálsa lífeyrissjóðnum.
Guðmundur Óskarsson, rekstrarverkfræðingur (M.Sc.). Framkvæmdastjóri upplýsingatækni (CIO) hjá Össuri hf.
Selma Svavarsdóttir, MBA. Sérfræðingur í markaðsdeild Arion banka en hefur sagt upp störfum og ráðið sig á Starfsmannasvið Landsvirkjunar.