19.02.2020
Fræðslufundur um fjárfestingarleiðir og ávöxtun Frjálsa lífeyrissjóðsins
Á fundinum fer Hjörleifur Arnar Waagfjörð, forstöðumaður Eignastýringar fagfjárfesta hjá Arion banka, yfir ávöxtun, fjárfestingarleiðir og fjárfestingarstefnu Frjálsa.
Fundurinn verður haldinn í Arion banka, Borgartúni 19, þriðjudaginn 25. febrúar kl. 17:30. Fundurinn stendur yfir í rúmlega klukkustund og boðið verður upp á kaffiveitingar.
Allir velkomnir.