13.04.2016

Eitt be­sta ár Frjálsa lífeyr­is­s­jóðsins

Árið 2015 var eitt af bestu árum Frjálsa lífeyrissjóðsins frá stofnun hans þegar horft er til nokkurra þátta í rekstri sjóðsins:

  • Raunávöxtun stærstu fjárfestingarleiðarinnar Frjálsa 1 var 11,0% og hefur raunávöxtun leiðarinnar ekki verið hærri frá árinu 2003.

  • Frjálsi Áhætta skilaði metraunávöxtun, eða 18,0% sem er hæsta raunávöxtun frá stofnun sjóðsins.

  • Á árinu greiddu 19.475 sjóðfélagar 11,7 milljarðar í iðgjöld til sjóðsins og hefur fjöldi greiðandi sjóðfélaga og fjárhæð iðgjalda í sjóðinn aldrei verið hærri.

  • Tryggingafræðileg staða tryggingadeildar sjóðsins batnaði sjötta árið í röð og voru eignir umfram heildarskuldbindingar í lok árs 5,0% sem endurspeglar sterka tryggingafræðilega stöðu sjóðsins.

  • Loks var Frjálsi lífeyrissjóðurinn valinn besti lífeyrissjóður Evrópu í sínum stærðarflokki annað árið í röð af fagtímaritinu Investment Pension Europe (IPE).

Aðrar helstu niðurstöður ársuppgjörs sjóðsins voru eftirfarandi:

  • Nafnávöxtun fjárfestingarleiða séreignardeildar sjóðsins var á bilinu 6,8%-20,4% árið 2015 og 5 ára meðalnafnávöxtun 6,5%-11,9%. Nánari upplýsingar um ávöxtun sjóðsins er að finna hér.

  • Nafnávöxtun tryggingadeildar var 10,5% árið 2015 og raunávöxtun 8,4%, Fimm ára meðalnafnávöxtun var 9% og meðalraunávöxtun 5,5%. Rétt er að hafa í huga að skuldabréf tryggingadeildar eru gerð upp á kaupkröfu en skuldabréf séreignardeildar eru gerð upp á markaðsvirði.

  • Hrein eign til greiðslu lífeyris nam um 174 milljörðum í árslok samanborið við 146 milljarða árið 2014 og stækkaði sjóðurinn um tæp 19% á milli ára. Stærð séreignadeildar var um 125 milljarðar og stærð tryggingadeildar um 49 milljarðar.

  • Tryggingafræðilega staða samtryggingarsjóðs batnaði um 3,3 prósentustig á árinu. Í lok árs 2015 var hlutfall eigna 10,3% umfram áfallnar skuldbindingar og 5% umfram heildarskuldbindingar.

  • Iðgjöld sjóðfélaga og launagreiðenda námu 11,7 milljörðum samanborið við 9,9 milljarða árið áður og jukust um 18%. Lágmarksiðgjöld voru 9,4 milljarðar og viðbótariðgjöld 2,3 milljarðar.

  • Lífeyrisgreiðslur úr séreignadeild og tryggingadeild voru um 2,2 milljarðar en 2,1 milljarðar árið áður og hækkuðu um 7%. Þar af nam lífeyrir séreignadeildar 1,8 milljörðum og tryggingadeildar 494 milljónum.

  • Fyrirframútgreiðslur á séreignarsparnaði námu 176 milljónum en 1 milljarði árið áður og lækkuðu um 82%. Iðgjöldum ráðstafað inn á höfuðstól lána eða til öflunar íbúðarhúsnæðis námu um 722 milljónum en 142 milljónum árið 2014.

  • Heildarfjöldi sjóðfélaga í árslok var um 52.654 og fjölgaði þeim um 3.118 á árinu eða 6%. Fjöldi sjóðfélaga sem valdi að greiða í sjóðinn á árinu var 19.475 og fjölgaði þeim um 484 á árinu eða um 3%.

Share article:

facebookxmaillinkedin

More news

News overview
16 October 2026

Changes to interest rates on indexed loans

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Read more
15 October 2026

It is now possible to allocate private pension savings towards a housing loan

Applications have reopened for the tax-free allocation of supplementary pension savings under the general scheme. New legislation on the allocation of private pension savings toward housing loans took effect on 1 October 2026.

Read more
14 October 2026

Unpaid pension fund contributions for the year 2025

Frjálsi has now sent out payment requests and created claims in online banking for unpaid pension fund contributions for the year 2025. Pension fund contributions must be paid on all wage income/calculated remuneration, not just on base salary or primary employment.

Read more