13.05.2019

Athugasemd ve­gna gre­inar í Mor­gun­blaðinu

Hróbjartur Jónatansson, sjóðfélagi í Frjálsa, heldur því fram í grein í Morgunblaðinu í dag að ekki hafi orðið af því að efna til útboðs um endurskoðun sjóðsins. Hið rétta er að KPMG verður endurskoðandi Frjálsa eftir ársfund í dag, mánudag, í stað Deloitte, sem verið hefur endurskoðandi sjóðsins frá árinu 2004. Það varð niðurstaðan að undangengnum tilboðum sem Frjálsi óskaði eftir í endurskoðun sjóðsins.
Stjórn Frjálsa gerði tillögu um KPMG eftir yfirferð á þeim tilboðum sem bárust. Samkvæmt samþykktum sjóðsins þurfa tillögur um endurskoðenda að berast stjórn sjóðsins eigi síðar en viku fyrir ársfund. Engar aðrar tillögur bárust og verður því KPMG sjálfkjörið sem endurskoðandi sjóðsins.

Enda þótt tillaga stjórnar hafi verið birt á vef Frjálsa skrifar Hróbjartur í Morgunblaðið:

„Sömuleiðis þarf að að skilja endurskoðun bankans frá endurskoðun sjóðsins en sama endurskoðunarfélag hefur um árabil þjónað báðum. Það er ekki heppilegt fyrirkomulag. Á síðasta ársfundi lýsti formaður endurskoðunarnefndar sjóðsins, sem raunar er aðeins skipuð stjórnarmönnum, því yfir að farið yrði með endurskoðun sjóðsins í útboð. Af því hefur þó ekki orðið.“

Share article:

facebookxmaillinkedin

More news

News overview
16 October 2026

Changes to interest rates on indexed loans

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Read more
15 October 2026

It is now possible to allocate private pension savings towards a housing loan

Applications have reopened for the tax-free allocation of supplementary pension savings under the general scheme. New legislation on the allocation of private pension savings toward housing loans took effect on 1 October 2026.

Read more
14 October 2026

Unpaid pension fund contributions for the year 2025

Frjálsi has now sent out payment requests and created claims in online banking for unpaid pension fund contributions for the year 2025. Pension fund contributions must be paid on all wage income/calculated remuneration, not just on base salary or primary employment.

Read more