04.04.2012

Ár­sup­p­gjör Frjálsa lífeyr­is­s­jóðsins

Ársuppgjör Frjálsa lífeyrissjóðsins fyrir árið 2011 liggur nú fyrir.

  • Nafnávöxtun fjárfestingarleiða séreignardeildar sjóðsins var á bilinu 9,5-14,7% árið 2011 og 5 ára meðalnafnávöxtun 5,8-13,8%. Nánari upplýsingar um ávöxtun sjóðsins er að finna hér.

  • Nafnávöxtun tryggingadeildar var 9,0% árið 2011 og 5 ára meðalnafnávöxtun 4,2%. Skuldabréf tryggingadeildar eru gerð upp á kaupkröfu en skuldabréf séreignardeildar eru gerð upp á markaðsvirði.

  • Tryggingafræðileg staða tryggingadeildar sjóðsins batnaði verulega á milli ára og var í lok árs -0,4% samanborið - 4,8% í lok ársins 2010.

  • Hrein eign til greiðslu lífeyris nam um 99,7 milljörðum í árslok samanborið við 87 milljarða árið 2010 og stækkaði sjóðurinn um 14,5% á milli ára. Stærð séreignadeildar var um 76,2 milljarðar og stærð tryggingadeildar um 23,5 milljarðar.

  • Iðgjöld sjóðfélaga og launagreiðenda námu 6,8 milljörðum samanborið við 5,8 milljarð árið áður og jukust um 16,5%. Lágmarksiðgjöld voru 5,3 milljarðar og viðbótariðgjöld 1,4 milljarðar.

  • Lífeyrisgreiðslur voru 3,6 milljarðar en 2,5 milljarðar árið árið áður og jukust um 42%. Skýringin á þessari miklu aukningu er að árinu 2011 hækkaði sú hámarksfjárhæð sem sjóðfélagar geta tekið út fyrirfram úr séreignarsparnaði úr 2,5 milljónum í 5 milljónir og síðar á árinu í 6,25 milljónir.

  • Heildarfjöldi sjóðfélaga í árslok var 42.724 og fjölgaði þeim um 2.092 á árinu. Fjöldi sjóðfélaga sem greiddi í sjóðinn var 15.518 og fjölgaði þeim um 1.202 á árinu.

Upplýsingar um meginniðurstöður ársreiknings má finna í auglýsingu sjóðsins.

Share article:

facebookxmaillinkedin

More news

News overview
16 October 2026

Changes to interest rates on indexed loans

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Read more
15 October 2026

It is now possible to allocate private pension savings towards a housing loan

Applications have reopened for the tax-free allocation of supplementary pension savings under the general scheme. New legislation on the allocation of private pension savings toward housing loans took effect on 1 October 2026.

Read more
14 October 2026

Unpaid pension fund contributions for the year 2025

Frjálsi has now sent out payment requests and created claims in online banking for unpaid pension fund contributions for the year 2025. Pension fund contributions must be paid on all wage income/calculated remuneration, not just on base salary or primary employment.

Read more