08.04.2015

Árs­fun­dur Frjálsa lífeyr­is­s­jóðsins ver­ður haldinn þann 29. apríl nk.

Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins verður haldinn miðvikudaginn 29. apríl næstkomandi, kl. 17:15, í höfuðstöðvum Arion banka að Borgartúni 19.

Dagskrá

  1. Skýrsla stjórnar

  2. Kynning ársreiknings

  3. Tryggingafræðileg athugun

  4. Fjárfestingarstefna sjóðsins

  5. Kosning stjórnar og varamanna

  6. Kjör endurskoðanda

  7. Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins

  8. Laun stjórnarmanna

  9. Önnur mál

Á fundinum verður m.a. kosið um tvo stjórnarmenn til tveggja ára og tvo varamenn til eins árs. Framboð til stjórnar þurfa að liggja fyrir eigi síðar en sjö dögum fyrir ársfund. Tilkynna ber framboð til stjórnar með sannanlegum hætti. Vakin er athygli á því að í 31. gr. laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða er að finna ákvæði um hæfisskilyrði stjórnarmanna lífeyrissjóða. Jafnframt hefur FME sett reglur um framkvæmd hæfismats framkvæmdastjóra og stjórnarmanna lífeyrissjóða. Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins verða birtar hér á síðunni tveimur vikum fyrir ársfund. Stjórn sjóðsins hvetur sjóðfélaga til að mæta á fundinn.

Share article:

facebookxmaillinkedin

More news

News overview
16 October 2026

Changes to interest rates on indexed loans

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Read more
15 October 2026

It is now possible to allocate private pension savings towards a housing loan

Applications have reopened for the tax-free allocation of supplementary pension savings under the general scheme. New legislation on the allocation of private pension savings toward housing loans took effect on 1 October 2026.

Read more
14 October 2026

Unpaid pension fund contributions for the year 2025

Frjálsi has now sent out payment requests and created claims in online banking for unpaid pension fund contributions for the year 2025. Pension fund contributions must be paid on all wage income/calculated remuneration, not just on base salary or primary employment.

Read more