17.03.2018

Árét­ting frá stjórn Frjálsa lífeyr­is­s­jóðsins ve­gna fjölmiðlaum­fjöl­lunar

Frjálsi lífeyrissjóðurinn hefur verið starfandi í fjóra áratugi og hefur aðildarskylda verið frjáls frá stofnun sjóðsins. Í öll þessi ár hefur sjóðurinn aldrei haft eigin starfsmenn og jafnan útvistað rekstri sínum til fjármálafyrirtækja, án athugasemda frá Fjármáleftirlitinu (FME) og forverum þess. Það hefur verið mat stjórnar að þetta fyrirkomulag eigi drjúgan þátt í velgengni sjóðsins. Lífeyrissjóðurinn starfar samkvæmt gildandi lögum eins og þau eru á hverjum tíma. Þar á meðal í fullu samræmi við þau ákvæði laga og reglna um lífeyrissjóði sem taka til útvistunar.

Blekkingarvefur ástæða tapsins á United Silicon

Fjármálaeftirlitið er nú með fjárfestingu í United Silicon til sérstakrar athugunar. Í því sambandi er óhjákvæmilegt að árétta að um einstakt tilvik er að ræða, þar sem sterkur grunur er um að eftirlitsaðilar, stjórnvöld, lífeyrissjóðir og banki hafi verið blekktir af þeim aðila sem leiddi verkefnið. Sá blekkingarvefur, sem þar virðist hafa verið spunninn, er meginástæða þess að fjárfestingin tapaðist og hefur viðkomandi verið kærður. Eins og sjóðurinn hefur upplýst um í frétt á vefsíðu sinni mun hann gæta réttar síns og sjóðfélaga eins og kostur er. Í ljósi þeirrar rannsóknar, sem efnt var til eftir að greiðslustöðvun United Silicon var tilkynnt, óskaði Frjálsi lífeyrissjóðurinn, ásamt öðrum lífeyrissjóðum, eftir óháðu lögfræðiáliti um stöðu sjóðanna gagnvart fjárfestingum tengdum United Silicon. Þar verður skorið úr um til hvaða aðgerða sjóðirnir geti gripið til að verja hagsmuni sjóðfélaga. Að öðru leyti vísast til greinargerðar á vefsíðunni um fjárfestingu Frjálsa lífeyrissjóðsins í United Silicon.

Fjárfestingartekjur Frjálsa 12,5 milljarðar

Tap Frjálsa lífeyrissjóðsins vegna United Silicon var rúmlega 1,1 milljarður króna. Rétt er þó að setja það í samhengi við umfang sjóðsins og afkomu. Fjárfestingartekjur sjóðsins árið 2017 voru 12,5 milljarðar króna að teknu tilliti til tapsins á United Silicon. Fjárfestingin nam rúmlega 0,5% af eignum sjóðsins en þær voru um 210 milljarðar króna um síðustu áramót. Lögð hefur verið áhersla á að fjárfesta lágu hlutfalli í hverju verkefni til að dreifa áhættu sem fylgir fjárfestingum sjóðsins.

Ávöxtun séreignarleiða sjóðsins, sem fjárfestu í United Silicon, var 6,5% og 6,9% árið 2017. Fimmtán ára ávöxtun er um 9% á ársgrundvelli í leiðum Frjálsa lífeyrissjóðsins þrátt fyrir fjármálahrunið 2008.

Mikil fjölgun sjóðfélaga

Frjálsi lífeyrissjóðurinn hefur vaxið hlutfallslega meira en lífeyriskerfið í áraraðir. Um 22 þúsund einstaklingar völdu að greiða iðgjöld til sjóðsins árið 2017 og er það fjölgun um 8 þúsund frá árinu 2010. Um tvöfalt fleiri greiddu skylduiðgjald til sjóðsins en í þann frjálsa sjóð samkeppnisaðila sem næstur kom. Um 57 þúsund manns eiga séreign eða réttindi í Frjálsa lífeyrissjóðnum.

Share article:

facebookxmaillinkedin

More news

News overview
16 October 2026

Changes to interest rates on indexed loans

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Read more
15 October 2026

It is now possible to allocate private pension savings towards a housing loan

Applications have reopened for the tax-free allocation of supplementary pension savings under the general scheme. New legislation on the allocation of private pension savings toward housing loans took effect on 1 October 2026.

Read more
14 October 2026

Unpaid pension fund contributions for the year 2025

Frjálsi has now sent out payment requests and created claims in online banking for unpaid pension fund contributions for the year 2025. Pension fund contributions must be paid on all wage income/calculated remuneration, not just on base salary or primary employment.

Read more