10.03.2026

Are the re­tire­ment years within reach?

Frjálsi í samstarfi við Arion banka býður til opins fræðslufundar um útgreiðslur lífeyrissparnaðar.

Að mörgu er að hyggja þegar kemur að útgreiðslu lífeyrissparnaðar og því leggjum við sérstaka áherslu á faglega og persónulega útgreiðsluráðgjöf ásamt því að bjóða reglulega upp á opna fræðslufundi um útgreiðslur.

Útgreiðslur lífeyrissparnaðar geta fyrst hafist við 60 ára aldur, en þó eru útgreiðslureglur mismunandi eftir lífeyrissjóðum og tegundum lífeyrissparnaðar. Meðal umfjöllunarefnis verða útgreiðslureglur, skatta­leg meðferð lífeyrissparnaðar og samspil útgreiðslna við greiðslur frá Tryggingastofnun. Við viljum vekja athygli á því að nú er hægt að sækja um útgreiðslu eftirlauna og séreignar í Arion appinu.

Fræðslufundurinn verður haldinn mánudaginn 23. mars kl. 17:15:

  • Í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19, 105 Reykjavík

  • Í streymi á Facebook síðu Frjálsa lífeyrissjóðsins

Fundurinn stendur yfir í rúma klukkustund og verður boðið upp á léttar kaffiveitingar.

Allir velkomnir.

Share article:

facebookxmaillinkedin

More news

News overview
16 October 2026

Changes to interest rates on indexed loans

Breytilegir vextir verðtryggðra lána Frjálsa hækka úr 4,05% í 4,45% og tekur vaxtabreytingin gildi 15. nóvember nk.

Read more
15 October 2026

It is now possible to allocate private pension savings towards a housing loan

Applications have reopened for the tax-free allocation of supplementary pension savings under the general scheme. New legislation on the allocation of private pension savings toward housing loans took effect on 1 October 2026.

Read more
14 October 2026

Unpaid pension fund contributions for the year 2025

Frjálsi has now sent out payment requests and created claims in online banking for unpaid pension fund contributions for the year 2025. Pension fund contributions must be paid on all wage income/calculated remuneration, not just on base salary or primary employment.

Read more