09.09.2022
Áhrif lagabreytinga 1. janúar 2023
Breytingar á lögum sem varða lífeyrissjóði taka gildi 1. janúar 2023 og hafa í för með sér þó nokkrar breytingar fyrir sjóðfélaga. Með lagabreytingunum eru m.a. lögfest nokkur atriði úr lífskjarasamningi aðila vinnumarkaðarins frá 2019.
Helstu breytingar eru eftirfarandi:
Útgreiðslur hefðbundins viðbótarlífeyrissparnaðar sem takmarkast við allt að 4% framlag sjóðfélaga og 2% framlag launagreiðanda verða áfram undanþegnar skerðingum á ellilífeyri, tekjutryggingu örorkulífeyris og ráðstöfunarfé skv. lögum um almannatryggingar.
Aftur á móti munu útgreiðslur annarra tegunda séreignar ekki verða undanþegnar skerðingum almannatrygginga. Þeir sem hafa þegar hafið töku lífeyris almannatrygginga fyrir 1. janúar 2023 eru þó undanþegnir ofangreindum skerðingarreglum.
Lágmarksiðgjald til lífeyrissjóðs hækkar úr 12% af iðgjaldsstofni í 15,5%.
Lífeyrissjóðum er heimilt að bjóða sjóðfélögum að ráðstafa allt að 3,5% mótframlagi launagreiðanda í tilgreinda séreign sem er með þrengri útgreiðsluheimildir en frjáls séreign.
Sjóðfélögum er heimilt að ráðstafa tilgreindri séreign skattfrjálst í úrræði fyrstu íbúðar ef hámarksfjárhæð ársins, 500 þús. kr., næst ekki með skattfrjálsri ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar.
Þeim sem hafa ekki verið eigendur að íbúðarhúsnæði í fimm ár verður heimilt að nýta úrræði fyrstu íbúðar.
Lagabreytingarnar ná til laga um lífeyrissjóði, laga um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð, til laga um tekjuskatt, til laga um almannatryggingar og til laga um málefni aldraðra.
Lagabreytingarnar eru aðgengilegar á vefsíðu Alþingis, sjá hér.
Nánari upplýsingar um áhrif breytinganna má finna í spurt og svarað.