Frjálsi er í Arion appinu

Sjóðfélagar Frjálsa geta fylgst með séreignarsparnaði og samtryggingarréttindum sínum í Arion appinu og framkvæmt helstu aðgerðir á einfaldan og fljótlegan hátt. Arion appið er opið öllum og því ekki nauðsynlegt að vera í bankaviðskiptum við Arion banka til að nýta sér kosti þess að hafa heildstæða yfirsýn yfir lífeyrissparnaðinn sinn hjá Frjálsa í appi.

Ef þú ert ekki með lífeyrissparnað hjá Frjálsa nú þegar getur þú stofnað hann í Appinu með nokkrum smellum. Þú getur líka sameinað annan séreignarsparnað á einn stað með einföldum hætti.

Sækja um viðbótarsparnað Sækja um skyldusparnað

Í appinu getur þú meðal annars: 

  • Stofnað viðbótarsparnað og skyldusparnað hjá Frjálsa
  • Séð stöðuna á lífeyrissparnaði þínum hjá Frjálsa
  • Flutt annan séreignasparnað til Frjálsa þér að kostnaðarlausu*
  • Breytt sparnaðarleið
  • Tilkynnt um nýjan launagreiðanda
  • Sótt um útgreiðslu frjálsrar séreignar og erfðaséreignar
  • Sótt hreyfingayfirlit
  • Stillt hlutfall viðbótarsparnaðar
  • Séð áunnin og áætluð eftirlaun við starfslok og áhrif frestunar/flýtingu á lífeyrisgreiðslur
  • Séð þróun séreignarsparnaðar frá upphafi og ávöxtun hans
  • Skoðað áætlaða inneign í séreignarsparnaði við starfslok og mánaðarlega útgreiðslu
  • Fengið yfirlit yfir sjóðfélagalán og greitt inn á lánið
  • Séð upplýsingar um ráðstöfun viðbótarsparnaðar við húsnæðiskaup
  • Séð upplýsingar um greiðslur inn á íbúðarlán og hvort greiðslur séu virkar 

Þetta og meira til er að finna í Arion appinu fyrir sjóðfélaga Frjálsa.

Sækja Arion appið fyrir iOS Sækja Arion appið fyrir Android

*Sumir vörsluaðilar draga flutningskostnað frá heildarfjárhæð áður en flutningur fer fram en Arion banki, rekstraraðili Frjálsa, endurgreiðir flutningskostnað í séreign sjóðfélaga þegar flutningur hefur átt sér stað.

Teiknuð mynd - Arion appið

Viðbótarsparnaður

Viðbótarsparnaður er hentug leið til að spara og getur nýst bæði til að fjárfesta í húsnæði og til að auka ráðstöfunartekjur eftir 60 ára aldur.

Við starfslok lækka almennt ráðstöfunartekjur en viðbótarsparnaður er hagkvæm leið til að brúa bilið.

Helstu kostir:

  • 2% launahækkun í formi mótframlags
  • Erfanleiki
  • Skattalegt hagræði
  • Hagkvæm fjármögnun á húsnæði

Viðbótarsparnaður margborgar sig.

Sækja um viðbótarsparnað

Skyldusparnaður

Frjálsi er ólíkur flestum öðrum lífeyrissjóðum að því leyti að sjóðfélögum býðst að ráðstafa meirihluta skyldusparnaðar síns í erfanlega séreign.

Frjálsi er góður kostur fyrir þá sem hafa val um lífeyrissjóð og vilja að lífeyrissparnaðurinn sinn erfist. Séreignarhluti skyldusparnaðarins veitir þér einnig aukinn sveigjanleika í útgreiðslum.

Helstu kostir:

  • Erfanleiki
  • Sveigjanleiki í útgreiðslum
  • Fjölbreyttar fjárfestingarleiðir
  • Ævilangur ellilífeyrir
  • Örorku-, maka- og barnalífeyrir

Sækja um skyldusparnað