Frétt

Umfjöllun um innlendar sérhæfðar fjárfestingar

Umfjöllun um innlendar sérhæfðar fjárfestingar

Í nýjustu fræðslugrein Frjálsa er fjallað um uppbyggingu innlendra sérhæfðra fjárfestinga en í kjölfar efnahagshrunsins árið 2008 hófst sú vegferð. Slíkar fjárfestingar eru ólíkar hefðbundnari fjárfestingum, t.d. skráðum verðbréfum, að því leytinu til að þær fela oft í sér lengri binditíma, eru óskráðar og illseljanlegri. Þeim fylgir því að jafnaði væntingar um hærri ávöxtun en á sama tíma fylgir þeim aukin áhætta. Áhættudreifing er mikilvægur þáttur í uppbyggingu eigna, sérstaklega þeirra sem hafa langan fjárfestingartíma, þar sem með henni má halda fram að dregið sé úr sveiflum í ávöxtun. Með hliðsjón af þessu hefur stjórn Frjálsa sett sér það markmið í fjárfestingarstefnu undanfarinna ára að byggja upp dreift og fjölbreytt eignasafn bæði innanlands og erlendis.

Hér má lesa fræðslugrein um innlendar sérhæfðar fjárfestingar.