Frétt

Fræðslufundur um útgreiðslur úr lífeyrissparnaði

Fræðslufundur um útgreiðslur úr lífeyrissparnaði

Að mörgu er að hyggja þegar kemur að útgreiðslu lífeyrissparnaðar og af því tilefni býður Arion banki til opins fræðslufundar í höfuðstöðvum bankans í Borgartúni 19, þriðjudaginn 26. febrúar kl. 17:30.

Á fundunum verður farið yfir helstu atriði sem ber að hafa í huga varðandi útgreiðslur lífeyrissparnaðar:

  • Reglur um útgreiðslur lífeyrissparnaðar
  • Skattalega meðferð lífeyrissparnaðar
  • Samspil útgreiðslna úr lífeyrissjóðum og Tryggingastofnun
  • Mikilvægi þess að fólk á miðjum aldri hugi vel að söfnun lífeyrissparnaðar

Fundurinn stendur yfir í rúmlega klukkustund. Boðið verður upp á léttar kaffiveitingar.

Allir velkomnir.

Skráning á fundinn