Frétt

Vextir verðtryggðra lána með breytilegum vöxtum hækka

Vextir verðtryggðra lána með breytilegum vöxtum hækka

Breytilegir vextir á nýjum verðtryggðum sjóðfélagalánum Frjálsa lífeyrissjóðsins hækka frá og með 15. ágúst nk. úr 2,43% í 2,51% og vextir eldri viðbótarlána hækka úr 3,08% í 3,16%.

Hækkanirnar gilda einnig um þau verðtryggðu lán með breytilegum vöxtum sem þegar hafa verið tekin.

Vextir nýrra verðtryggðra lána með föstum vöxtum eru í dag 3,55% og vextir nýrra óverðtryggðra lána með föstum vöxtum til þriggja ára í senn eru 5,60%.

Nánari upplýsingar um lán sjóðsins.