Frétt

Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins verður haldinn 30. maí nk.

Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins verður haldinn 30. maí nk.

Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins verður haldinn miðvikudaginn 30. maí næstkomandi, kl. 17:15, í höfuðstöðvum Arion banka að Borgartúni 19.

Dagskrá

  1. Skýrsla stjórnar
  2. Kynning ársreiknings
  3. Tryggingafræðileg athugun
  4. Fjárfestingarstefna sjóðsins
  5. Kosning stjórnar og varamanna
  6. Kjör endurskoðanda
  7. Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins
  8. Laun stjórnarmanna
  9. Önnur mál

Á fundinum verður kosið um tvo stjórnarmenn til tveggja ára og tvo varamenn til eins árs. Framboð til stjórnar þurfa að liggja fyrir eigi síðar en sjö dögum fyrir ársfund. Tilkynna ber framboð til stjórnar með sannanlegum hætti.

Vakin er athygli á því að í 31. gr. laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða er að finna ákvæði um hæfisskilyrði stjórnarmanna lífeyrissjóða. Jafnframt hefur Fjármálaeftirlitið sett reglur um framkvæmd hæfismats framkvæmdastjóra og stjórnarmanna lífeyrissjóða.

Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins verða birtar hér á síðunni tveimur vikum fyrir ársfund. Stjórn sjóðsins hvetur sjóðfélaga til að mæta á fundinn.