Greiðsluskjól Frjálsa fjárfestingarbankans fyrir einstaklinga með erlend lán
Frjálsi fjárfestingarbankinn er stoltur af að kynna viðskiptavinum sínum skuldbreytingarlausn sem tekur bæði á vanda vegna höfuðstóls erlendra lána og aukins greiðsluþunga eftir fall íslensku krónunnar.
Viðskiptavinum Frjálsa fjárfestingarbankans stendur til boða 26% lækkun höfuðstóls að meðaltali þegar láni er skuldbreytt í íslenskar krónur. Lækkunin tekur mið af myntsamsetningu og lengd lánasamnings. Við skuldbreytinguna verður lánið að íslensku verðtryggðu láni, 25 eða 40 ára, með föstum 3,95% vöxtum í þrjú ár og möguleika á lengingu um eitt ár fyrir skilvísa greiðendur. Eftir það verða fastir vextir lánsins 5,25%.
Jafnframt standa viðskiptavinum til boða fastir óverðtryggðir 6,00% vextir í þrjú ár með lengingu í eitt ár fyrir skilvísa greiðendur. Þeir vextir breytast síðan í millibankavexti (REIBOR) + 1,50% en viðskiptavinum er einnig frjálst að skipta yfir í fasta verðtryggða 5,25% vexti.
Með aðgerð þessari geta lántakendur í viðskiptum við Frjálsa fjárfestingarbankann lækkað greiðslubyrði sína af erlendum fasteignalánum um allt að 41% og um allt að 20% ef miðað er við greiðslubyrði eftir greiðslujöfnun erlends láns.
Úrræði Frjálsa fjárfestingabankans myndar greiðsluskjól til næstu ára og kemur til móts við þarfir heimila sem glíma við skerta greiðslugetu eða of háa skuldabyrði vegna erlendra lána. Úrræðið stendur viðskiptavinum til boða frá 14. desember næstkomandi og út árið 2010.
Frjálsi fjárfestingarbankinn tekur auk þess þátt í úrræðum ríkisstjórnarinnar að því er varðar greiðslujöfnun og greiðsluaðlögun.
Umsókn skal skila til Frjálsa fjárfestingarbankans, Lágmúla 6, Reykjavík. Opnunartími afgreiðslu er frá kl. 12:00 til 15:00 virka daga.
Smelltu á hnappinn hér fyrir neðan til að reikna út lækkun höfuðstóls og greiðslubyrði á þínu láni.
Spurt og svarða um Greiðsluskjól 3+1
Smelltu á hnappinn hér fyrir neðan til að panta viðtal við ráðgjafa.