Greiðslujöfnun íbúðalána

Verðtryggð fasteignalán - Sjálfkrafa greiðslujöfnun

Samkvæmt lögum um greiðslujöfnun sem samþykkt hafa verið á Alþingi fara verðtryggð fasteignaveðlán sem eru í skilum sjálfkrafa í greiðslujöfnun frá og með gjalddaga í desember nema lántaki sæki sérstaklega um að svo verði ekki. Beiðni um það þarf að berast Frjálsa fjárfestingarbankanum eigi síðar en 20. nóvember. Bent skal á að þótt lán sé komið í greiðslujöfnun getur lántaki hvenær sem er sagt sig frá henni með tilkynningu sem þarf að berast í síðasta lagi 10 dögum fyrir næsta gjalddaga lánsins.

Áætlað er að með greiðslujöfnun verði greiðslubyrði af láni í desember 2009 um 17% lægri en ella.
 
Hafi lántaki ekki fengið sjálfvirka greiðslujöfnun í desember 2009, t.d. vegna þess að lánið var ekki í skilum þá, þá er hægt að sækja um greiðslujöfnun þegar lánið er komið í skil.
 
    
 
 
Lán í vanskilum
Sjálfvirk greiðslujöfnun nær einungis til verðtryggðra fasteignaveðlána sem eru í skilum. Ef lán er í vanskilum er því eindregið beint til lántaka að hafa samband við lánafulltrúa Frjálsa fjárfestingarbankans og leita samninga um leiðir til að koma láninu í skil. Þegar lán er komið í skil getur viðkomandi óskað eftir greiðslujöfnun á lánið. Skila þarf inn beiðni um greiðslujöfnun í síðasta lagi 10 dögum fyrir gjalddag. Hér er umsóknareyðublað.

 
Fryst lán
Allmargir einstaklingar eru með lán sín í frystingu til ákveðins tíma. Þessi lán verða sjálfkrafa sett í greiðslujöfnun þegar frystingin rennur út og þarf því ekki að sækja um það sérstaklega.
 
 
Að segja sig frá greiðslujöfnun
Þeir sem ekki kjósa greiðslujöfnun þurfa að tilkynna það lánveitanda sínum fyrir 20. nóvember vegna gjalddaga í desember.  Þótt lán sé komið í greiðslujöfnun getur lántaki hvenær sem er sagt sig frá henni með tilkynningu til lánveitanda sem þarf að berast eigi síðar en 10 dögum fyrir næsta gjalddaga lánsins.
Þeir sem hafa sagt sig frá greiðslujöfnun en sjá síðar að þeir kunni að hafa hag af henni, t.d. vegna breyttra aðstæðna geta sótt um að fá greiðslujöfnun.


  

 

Fasteignalán í erlendum myntum

Með greiðslujöfnun greiðir skuldari afborgun og vexti af láninu miðað við greiðslubyrði lánsins  í maí 2008, eða miðað við fyrsta reglulega gjalddaga af láninu hafi lánið verið tekið seinna en í maí 2008.  Þessi upphæð er nefnd greiðslumark.

Greiðslumarkið skal bundið greiðslujöfnunarvísitölu, með grunnvísitölu sama mánaðar og greiðslumarkið miðast við. Höfuðstóll greiðslumarksins breytist í hlutfalli við breytingar á vísitölunni frá grunnvísitölunni til fyrsta gjalddaga og síðan í hlutfalli við breytingar á vísitölunni á milli gjalddaga.

Ef greiðslujöfnunarskuld er til staðar eftir að upprunalegum lánstíma lýkur, skal lántaki endurgreiða skuldina á sömu gjalddögum lánsins og áður, með sömu greiðslu og greidd var á síðustu umsömdu gjalddagafjárhæð lánsins í erlendri mynt . Skuldin endurgreiðist með þeim viðbótarfjölda gjalddaga sem þarf til að greiða upp eftirstöðvarnar en lánstíminn lengist þó að hámarki um 3 ár umfram núverandi lánstíma. Ef enn eru eftirstöðvar á láninu að loknum lánstímanum auk 3 ára og lántaki hafi á samningstímanum verið og sé í fullum skilum verður skuldin felld niður og veðböndum aflétt af fasteigninni án frekari kvaða.
 

 


Fróðlegir tenglar


Yfirlýsing um betri rétt

 

Slitastjórn Frjálsa fjárfestingarbankans lýsir því yfir að þeir viðskiptavinir bankans sem undirrita skilmálabreytingar húsnæðislána, t.d. vegna greiðslujöfnunar og frystingar, fyrirgeri ekki réttindum sínum til að óska eftir öðrum úrræðum síðar, þ.e. þeim sem bjóðast í framtíðinni, enda uppfylli þeir skilyrði fyrir nýtingu úrræðanna.  Sama gildir um önnur réttindi sem neytendur kunna að njóta samkvæmt lögum.



 

Gengi Frjálsa7.9.2010

GjaldmiðillKaupSala
USD117,96118,52
GBP181,31182,19
CHF116,42117,08
JPY1,411,41
EUR150,32151,16