Fastar greiðslur af erlendum lánum

 
Frjálsi fjárfestingarbankinn býður lántakendum með erlend lán að greiða fasta upphæð á mánuði þar til álitaefni varðandi erlend lán eru til lykta leidd fyrir dómstólum. Föst greiðsla miðast við kr. 5.000 á mánuði fyrir hverja upphaflegu milljón láns. Viðskiptavinum með bílalán í erlendri mynt eða önnur skammtímalán stendur til boða að greiða kr. 15.000 á mánuði fyrir hverja upphaflegu milljón láns.
 
  • Upphæð fastrar greiðslu af lánum sem eru með fimm ár eða lengur eftir af lánstímanum miðast við kr. 5.000 á mánuði af hverri upphaflegri lánaðri milljón kr.
  • Þeir lántakendur sem nýttu sér þetta úrræði fyrir 8. júlí 2010 geta sótt um lækkun á fastri greiðslu úr kr. 5.500 í kr. 5.000.
  • Upphæð fastrar greiðslu af lánum sem eru með styttri tíma en fimm ár eftir af lánstímanum, og af öllum bílalánum, miðast við kr. 15.000 á mánuði af hverri upphaflegri lánaðri milljón kr.
  • Hægt er að óska eftir að vanskilum sé bætt við höfuðstól lánsins. Almennt skilyrði er að vanskil séu ekki eldri en 3ja mánaða. Um eldri vanskil þarf að semja sérstaklega.
  • Fastar greiðslur af lánum fyrirtækja miðast við að greiðslan sé ekki lægri en greiðsla afborgana og vaxta í upphafi.
  • Fastar greiðslur gilda til og með desember 2010 með möguleika á ótímabundinni framlengingu samkvæmt ákvörðun kröfuhafa þar til niðurstaða liggur fyrir af hálfu Hæstaréttar eða löggjafans varðandi lögmæti sambærilegra lánasamninga bankans.
  • Ef lánið er í greiðslujöfnun fellur greiðslujöfnunin niður við þessa breytingu. Sækja þarf aftur um greiðslujöfnun að loknu því tímabili sem fastar greiðslur gilda.
  • Skilmálabreyting vegna fastra greiðslna er án kostnaðar fyrir lántakendur.

Smelltu á hnappinn hér fyrir neðan til að sækja um fastar greiðslur á erlendu láni.

Greiðsluskjól 3+1

Úrræði sem felst í lækkun höfuðstóls við breytingu erlends láns í íslenskar krónur er í gildi út árið 2010. Sjá nánar hér.
 

Yfirlýsing slitastjórnar Frjálsa fjárfestingarbankans um réttindi lántaka til að óska eftir öðrum úrræðum síðar.

Slitastjórn Frjálsa fjárfestingarbankans lýsir því yfir að þeir viðskiptavinir bankans sem undirrita skilmálabreytingar húsnæðislána, t.d. vegna greiðslujöfnunar og frystingar, fyrirgeri ekki réttindum sínum til að óska eftir öðrum úrræðum síðar, þ.e. þeim sem bjóðast í framtíðinni, enda uppfylli þeir skilyrði fyrir nýtingu úrræðanna. Sama gildir um önnur réttindi sem neytendur kunna að njóta samkvæmt lögum.



 

Gengi Frjálsa7.9.2010

GjaldmiðillKaupSala
USD117,96118,52
GBP181,31182,19
CHF116,42117,08
JPY1,411,41
EUR150,32151,16