Greiðslujöfnun með lengingu allt að þremur árum. Upphæð fyrsta gjalddaga verður eins og hann var í maí 2008. Fjárhæð gjalddaga tekur síðan breytingum eftir þróun greiðslujöfnunarvísitölu sem tekur mið af launaþróun og atvinnustigi.
Þetta úrræði á eingöngu við um lán sem tekin voru eða yfirtekin fyrir 1. maí 2008 og eru í skilum. Um þau lán sem tekin voru frá 1. júní 2008 til 1. október 2008 gildir að greiðslubyrði miðast við fyrsta gjalddaga þeirra.
Höfuðstóll tekur mið af vísitölu neysluverðs vegna lána í íslenskum krónum eða gengisþróun vegna lána í erlendri mynt.
Standi enn eitthvað eftir af skuldinni við lok samningstímans getur lántaki gert upp eftirstöðvarnar og eignast bifreiðina eða skilað henni inn til Frjálsa fjárfestingarbankans án frekari kvaða (sjá nánar í skilmálum).
Ekki er tekið sérstakt gjald fyrir þær breytingar sem hér eru kynntar en greiða þarf kostnað vegna þinglýsingar.
Þeir sem hafa nýtt sér frystingu hingað til, geta eins og aðrir nýtt sér þennan kost þegar núverandi tímabili frystingar lýkur.
Hægt verður að sækja um úrræðið út árið 2010.
Úrræðið á aðeins við um einstaklinga.
Lánið þarf að vera í fullum skilum og óska þarf eftir greiðslujöfnun a.m.k. 15 dögum fyrir gjalddaga svo að greiðslujöfnun láns öðlist gildi.