Greiðsluskjól 3+1


4.12.2009
Fréttatilkynning 4. des. 2009:
Frjálsi fjárfestingarbankinn er stoltur af að kynna viðskiptavinum sínum skuldbreytingarlausn sem tekur bæði á vanda vegna höfuðstóls erlendra lána og aukins greiðsluþunga eftir fall íslensku krónunnar.

Greiðsluskjól Frjálsa fjárfestingarbankans fyrir einstaklinga með erlend lán

  • Lækkun höfuðstóls erlendra lána um 26% að meðaltali
  • Allt að 41% minni greiðslubyrði
  • Úrræðið stendur til boða frá 14. desember nk. til loka júní 2010
  • Greiðsluskjól sem kemur til móts við þarfir heimila

Viðskiptavinum Frjálsa fjárfestingarbankans stendur til boða 26% lækkun höfuðstóls að meðaltali þegar láni er skuldbreytt í íslenskar krónur. Lækkunin tekur mið af myntsamsetningu og lengd lánasamnings. Við skuldbreytinguna verður lánið að íslensku verðtryggðu láni, 25 eða 40 ára, með föstum 3,95% vöxtum í þrjú ár og möguleika á lengingu um eitt ár fyrir skilvísa greiðendur. Eftir það verða fastir vextir lánsins 5,25%.

Jafnframt standa viðskiptavinum til boða fastir óverðtryggðir 6,00% vextir í þrjú ár með lengingu í eitt ár fyrir skilvísa greiðendur. Þeir vextir breytast síðan í millibankavexti (REIBOR) + 1,50% en viðskiptavinum er einnig frjálst að skipta yfir í fasta verðtryggða 5,25% vexti.

Með aðgerð þessari geta lántakendur í viðskiptum við Frjálsa fjárfestingarbankann lækkað greiðslubyrði sína af erlendum fasteignalánum um allt að 41% og um allt að 20% ef miðað er við greiðslubyrði eftir greiðslujöfnun erlends láns.

Úrræði Frjálsa fjárfestingabankans myndar greiðsluskjól til næstu ára og kemur til móts við þarfir heimila sem glíma við skerta greiðslugetu eða of háa skuldabyrði vegna erlendra lána. Úrræðið stendur viðskiptavinum til boða frá 14. desember 2009 og út árið 2010.

Frjálsi fjárfestingarbankinn tekur auk þess þátt í úrræðum ríkisstjórnarinnar að því er varðar greiðslujöfnun og greiðsluaðlögun.


 
Starfsemi Frjálsa fjárfestingarbankans felst aðallega í þjónustu við viðskiptavini, þótt ekki séu veitt ný lán, ásamt þjónustu við lánasöfn, innheimtustarfsemi, umsýslu leigufélaga og umsjón ýmissa byggingarverkefna. Starfsemi bankans varð 27 ára á þessu ári en hann hefur verið í eigu SPRON frá því í lok árs 2002. Við fall SPRON lokaðist fyrir stuðning móðurfélagsins við fjármögnun Frjálsa fjárfestingarbankans. Þegar fyrirséð var að greiðsluörðugleikar bankans liðu ekki hjá á skömmum tíma var óskað eftir slitum á honum í samræmi við 3. tl. 1. mgr. 101. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Í framhaldi af því var slitastjórn skipuð.
 
 


Til baka


 

Gengi Frjálsa7.9.2010

GjaldmiðillKaupSala
USD117,96118,52
GBP181,31182,19
CHF116,42117,08
JPY1,411,41
EUR150,32151,16