Fréttatilkynning 25.11.09 - Um kröfuhafafund
25.11.2009
Áætlað er að 50–65% endurheimtist af virði eigna Frjálsa fjárfestingarbankans sem var tekinn til slita samkvæmt ákvörðun Héraðsdóms Reykjavíkur 23. júní 2009 þegar eigið fé hans var uppurið. Þetta kom m.a. fram á fyrsta kröfuhafafundi bankans 19. nóvember síðastliðinn.
Helstu þættir sem hafa áhrif á endurheimturnar eru þróun á fasteignamarkaði, gengi gjaldmiðla, hagvöxtur og atvinnu- og launaþróun.
Aðalverkefni slitastjórnar Frjálsa fjárfestingarbankans er að varðveita sem best verðmæti hans kröfuhöfum til hagsbóta. Markaðsaðstæður eru óhagstæðar til eignasölu sem stendur og telur slitastjórn farsælast að reka bankann áfram til að hámarka virði eigna hans, m.a. með útleigu á eignum. Slitastjórn telur raunhæft að kanna möguleika á nauðasamningi þar sem hann mun að líkindum hafa í för með sér hagstæðari niðurstöðu fyrir kröfuhafa heldur en gjaldþrotaskipti. Uppgjör kann að taka nokkur ár.
Slitastjórn gerði grein fyrir stöðu bankans á fundinum og fór yfir kröfuskrána auk þess sem kröfuhöfum var gefinn kostur á að gera athugasemdir. Lýstar kröfur í búið námu tæpum 100 milljörðum króna, 37 kröfur voru samþykktar í heild eða breyttar að fjárhæð rúmir 93 milljarðar króna samkvæmt kröfuskránni, 110 kröfum var hafnað og 26 hafnað að svo stöddu. Samþykktar veðkröfur nema samtals 1.930.233 kr. Aðrar kröfur hafa stöðu almennra krafna. Frestur til að skila inn kröfulýsingum rann út 22. október 2009. Engar forgangskröfur voru samþykktar. Kröfufjárhæðir taka breytingum til hækkunar eða lækkunar við endanlega afstöðu slitastjórnar með tilliti til mótmæla sem borist hafa. Engar bindandi ákvarðanir voru teknar á fundinum.
Eignir Frjálsa fjárfestingarbankans samanstanda öðru fremur af lánasöfnum til einstaklinga og fyrirtækja sem tryggð eru með veðum í fasteignum. Aðrar eignir eru fasteignir sem leigðar eru út og auk þess nokkrar lóðir og fasteignir á byggingarstigi.
Starfsemi Frjálsa fjárfestingarbankans felst aðallega í þjónustu við viðskiptavini, þótt ekki séu veitt ný lán, ásamt þjónustu við lánasöfn, innheimtustarfsemi, umsýslu leigufélaga og utanumhald ýmissa byggingarverkefna. Fram kom á kröfuhafafundinum að Frjálsi fjárfestingarbankinn mun taka þátt í úrræðum ríkisstjórnarinnar að því er varðar greiðslujöfnun og greiðsluaðlögun. Jafnframt mun bankinn bjóða skuldurum tímabundin viðbótarúrræði sem m.a. eru miðuð við greiðslugetu.
Starfsemi bankans varð 27 ára á þessu ári en hann hefur verið í eigu SPRON frá því í lok árs 2002. Við fall SPRON lokaðist fyrir stuðning móðurfélagsins við fjármögnun Frjálsa fjárfestingarbankans. Þegar fyrirséð var að greiðsluörðugleikar bankans liðu ekki hjá á skömmum tíma var óskað eftir slitum á honum í samræmi við 3. tl. 1. mgr. 101. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Í framhaldi af því var slitastjórn skipuð.
Til baka