Innköllun (Calling in of Debts)
14.7.2009
Hér með er skorað á alla þá sem telja til hvers kyns skulda eða annarra réttinda á hendur Frjálsa fjárfestingarbankanum hf. eða eigna í umráðum bankans, að lýsa kröfum sínum skriflega fyrir slitastjórn bankans innan þriggja mánaða frá fyrri birtingu þessarar innköllunar. Kröfulýsingar skulu hafa borist slitastjórn innan fyrrgreinds tímamarks (22. október 2009) og skal efni þeirra vera í samræmi við fyrirmæli 2. og 3. mgr. 117. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. nr. 21/1991.
Innköllun
Frjálsi fjárfestingarbankinn hf.
Þann 23. júní 2009 krafðist stjórn Frjálsa fjárfestingarbankans hf. þess að bankinn yrði tekinn til slita í samræmi við 3. tl. 1. mgr. 101. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki þar sem ekki var talið sennilegt að greiðsluörðugleikar þess myndu líða hjá innan skamms tíma.
Frestdagur er 23. júní 2009 sbr. 2. ml. 3. mgr. 102. gr. laga nr. 44/2009 er Héraðsdómur Reykjavíkur skipaði bankanum slitastjórn.
Hér með er skorað á alla þá sem telja til hvers kyns skulda eða annarra réttinda á hendur Frjálsa fjárfestingarbankanum hf. eða eigna í umráðum bankans, að lýsa kröfum sínum skriflega fyrir slitastjórn bankans innan þriggja mánaða frá fyrri birtingu þessarar innköllunar. Kröfulýsingar skulu hafa borist slitastjórn innan fyrrgreinds tímamarks og skal efni þeirra vera í samræmi við fyrirmæli 2. og 3. mgr. 117. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. nr. 21/1991.
Kröfulýsingar skulu sendar til:
Slitastjórn Frjálsa fjárfestingarbankans hf.
Lágmúla 6
108 Reykjavík
Vegna áðurnefndra lagaákvæða er því beint til kröfuhafa að í kröfulýsingu komi fram sundurliðuð fjárhæð kröfu þann 23. júní 2009.
Kröfum í erlendri mynt skal lýst í viðkomandi mynt. Kröfuhöfum frá aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins eða Fríverslunarsamtaka Evrópu er heimilt að lýsa kröfum á tungumáli heimalands síns. Slíkum kröfulýsingum skal fylgja íslensk þýðing en þó er heimilt að lýsa kröfu á ensku án þess að þýðing fylgi. Aðrir kröfuhafar geta lýst kröfum sínum á íslensku eða ensku.
Sé kröfum ekki lýst innan framangreinds frests gilda um það sömu réttaráhrif og um vanlýsingu kröfu skv. 118. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. nr. 21/1991 og telst hún því fallin niður gagnvart Frjálsa fjárfestingarbankanum hf. nema undantekningar í 1. – 6. tölulið lagaákvæðisins eigi við.
Sérstaklega er áréttað að með því að lýsa kröfu sinni telst kröfuhafi hafa fallist á brottfall þagnarskyldu (bankaleyndar) að því er varðar viðkomandi kröfu.
Hér með er boðað til kröfuhafafundar og verður hann haldinn fimmtudaginn 19. nóvember 2009 kl. 10:00, að Hilton Hotel Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík. Rétt til setu á fundinum eiga þeir sem lýst hafa kröfu á hendur bankanum. Á fundinum verður fjallað um skrá yfir lýstar kröfur og afstöðu slitastjórnar að því leyti sem hún liggur fyrir. Skrá yfir lýstar kröfur verður aðgengileg þeim sem lýst hafa kröfum á hendur bankanum að minnsta kosti viku fyrir framangreindan fund.
Nánari upplýsingar um kröfulýsingar og meðferð krafna munu gerðar aðgengilegar á heimasíðu bankans, http://www.frjalsi.is/. Slitastjórn beinir eftirtöldum tilmælum til kröfuhafa:
a) Að upplýsa um tölvupóstfang sitt eða umboðsmann sinn í kröfulýsingu til að auðvelda miðlun upplýsinga.
b) Að tilgreina bankareikning til að auðvelda útgreiðslu, þegar og ef til hennar kemur.
c) Að lýsa kröfum sem fyrst eftir birtingu innköllunar.
Reykjavík 14. júlí 2009
Slitastjórn Frjálsa fjárfestingarbankans hf.
Hildur Sólveig Pétursdóttir hrl.
Hlynur Jónsson hdl.
Jóhann Pétursson hdl.
Calling in of Debts
Frjalsi Investment Banks Ltd.
On 23rd June 2009, the executive board of the Frjalsi Investment Banks Ltd. (Frjálsi fjárfestingarbankinn hf.) demanded that the bank should be liquidated under the Financial Institutions Act, No. 161/2002, Art. 101, par. 1, sub-par. 3, as it did not consider it likely that the bank’s financial difficulties would be cleared anytime soon.
The ultimate date is 23rd June 2009, cf. the Act No. 44/2009, Art. 102, par. 3, sub-par. 2, when the Reykjavík District Court appointed a liquidation board for the bank.
All those who wish to claim any kind of debts, or other rights, against the Frjalsi Investment Bank Ltd., or assets under the auspices of the bank, are hereby urged to declare their claims in writing to the liquidation board of the bank within three months from the publication of this calling in of debts. The statements of claims shall have been received by the liquidation board within the aforementioned deadline, their content being in keeping with the instructions of the Bankruptcy, etc., Act., No. 21/1991, Art. 117, par. 2 and 3.
The statements of claims should be submitted to:
The Liquidation Board of the Frjalsi Investment Bank Ltd.,
Lágmúli 6
108 Reykjavík
[Iceland]
Due to the aforementioned provisions of law, the claimants, in the statement of claims, are requested to specify the itemized amount of the claim as of 23rd June 2009,
Claims in a foreign currency should be specified in the currency in question. However, claimants within the member countries of the European Economic Area and the European Free-Trade Association shall be authorized to specify their claims in the language of their home country. Such statements of claims shall be accompanied by an Icelandic translation. However, claims may be specified in English without any accompanying translation. Other claimants may specify their claims in Icelandic or English.
In the event the claims are not specified within the aforementioned time limit, they shall be interpreted in the same manner as an imperfect specification of a claim under the Bankruptcy, etc., Act, No. 21/1991, Art. 118, thus ceasing to apply against the Frjalsi Investment Bank Ltd., unless coming under sub-par. 1-6 of this provision of law.
It should be emphasized that by specifying his claim, the claimant will be considered to have rescinded any confidentiality (bank secrecy) regarding the claim in question.
This constitutes a call to a meeting of the claimants which will be convened on Thursday 19th November 2009, 10:00 a.m., at the Hilton Hotel Nordica, Sudurlandsbraut 2, Reykjavík. Those who have specified their claims against the bank shall have the right to attend the meeting. On the agenda of the meeting there will be a list of the specified claims and the liquidation board’s position as it will then be available. At least one week before the aforementioned meeting is convened, a list of the specified claims will be available to those who have specified their claims against the bank.
Further information on the statements of claims, and the processing of the claims, will be made available on the bank’s website, http://www.frjalsi.is/. The liquidation committee would like to make the following recommendations to the claimants:
a) To specify their email address, or their representative, concerning the statement of claims, so as to facilitate the dissemination of information.
b) To specify a bank account so as to facilitate any disbursement if and when this would occur.
c) To specify their claims as soon as possible subsequent to this calling in of debts.
Reykjavík, 14th July 2009
The Liquidation Committee of the Frjalsi Investment Bank Ltd.,
Hildur Sólveig Pétursdóttir, Advocate to the Supreme Court
Hlynur Jónsson, District Court Attorney
Jóhann Pétursson, District Court Attorney
Til baka