Greiðslujöfnun íbúðalána í erlendri mynt


20.4.2009
Frjálsi fjárfestingarbankinn býður viðskiptavinum sínum upp á greiðslujöfnun lána í erlendri mynt með veði í íbúðarhúsnæði. Tilgangur greiðslujöfnunar er að létta greiðslubyrði viðskiptavina og til að gera þeim kleift að standa við skuldbindingar sínar. Það er þó háð þróun á gengi og vaxtastigi viðkomandi myntar hversu mikil áhrif greiðslujöfnunin hefur á greiðslubyrðina.

Mögulegt er að segja sig frá greiðslujöfnun hvenær sem er á lánstímanum, að því gefnu að lánið sé í skilum.

Vinsamlega hafið samband við lánafulltrúa Frjálsa til að fá frekari upplýsingar um úrlausn á greiðslubyrði erlendra íbúðalána.


Til baka


 

Gengi Frjálsa7.9.2010

GjaldmiðillKaupSala
USD117,96118,52
GBP181,31182,19
CHF116,42117,08
JPY1,411,41
EUR150,32151,16